Almennt spjallPosted by Anna Björg 15 Feb, 2010 18:31:26Ég hef ákveðið að hætta með þessa bloggsíðu, ég hætti að borga af henni núna í febrúar og á því von á því að henni verði lokað fljótlega. Ég er samt ekki hætt að gera handavinnu og taka myndir, en ég mun setja þær myndir inn á facebook.
Kæru lesendur, takk fyrir að hafa nennt að skoða þessa síðu en samkvæmt teljara hafa u.þ.b. 60 manns skoðað hana daglega síðan í nóvember.
Takk og bless
Prjón og heklPosted by Anna Björg 25 Jan, 2010 17:53:36
Ég átti von á því að vera ein í dag þar sem stóra systir er í Búlgaríu, litla systir eitthvað að fikta við tónlist og Auður örugglega að vinna of mikið, en það rættist heldur betur úr því, hér mættu tvær frábærar konur. Guðrún Lilja kom með París (hann prjónaði reyndar lítið) hún á víst ekki mikið af prjónum svo hún prjónaði með puttunum, ég veit ekki númer hvað þeir eru, hún prjónaði heilan trefil, já hún byrjaði á honum í dag og lauk við hann líka!

Arna mætti og lauk við ennisbandið sem hún var að prjóna úr bulky-lopa, næsta verkefni hennar er að læra að hekla svo hún geti skreytt bandið og ef ég þekki hana rétt verður það "kökusneið".

Og svo er það ég, ég er að prjóna þennan strák, það gengur reyndar hægt en þolinmæði þrautir vinnur allar!
Prjón og heklPosted by Anna Björg 24 Jan, 2010 16:10:09Ég er alltaf að verða duglegri og duglegri að fara út að ganga, búin að fara tvisvar á þessu ári

og þegar maður hættir sér út úr húsi er eins gott að vera þokkalega klæddur svo ég prjónaði legghlífar á mig. Uppskriftin er í lopablaði en munstrið teiknaði ég sjálf! Prjónað úr léttlopa á prjóna númer 5.
Prjón og heklPosted by Anna Björg 19 Jan, 2010 19:34:47Elsa æskuvinkona mín frá Dalvík færði mér fullt af garni, úr dánarbúi móður sinnar, til að prjóna fyrir RKÍ, ég er nú ekki búin að vera dugleg undanfarið en nú hef ég lokið við teppi.

Domino-munstur.

Þetta er prjónað úr léttlopa utan um litlu brennivínsflöskurnar.
Prjón og heklPosted by Anna Björg 18 Jan, 2010 16:34:56Við erum nú ekki almennilega komnar í gang með mánudagsvinnuna, það hefur verið mikið að gera hjá okkur en í dag settumst við niður og prjónuðum, við vorum þrjár skvísur. Þóra sem var að prjóna gult barnateppi, úr lanett-garni, hún er að fara til Búlgaríu á miðvikudaginn og ætlar að klára teppið þar og skilja það eftir. Arna sem er að prjóna ennisband úr bulky-lopa, uppskriftin er hugarsmíð Guðrúnar Lilju og svo ég sem er að prjóna legghlífar á sjálfa mig úr léttlopa, svo mér verði ekki kalt í cavalier göngunum.

Allt í einni mynd :)
Prjón og heklPosted by Anna Björg 03 Jan, 2010 19:04:25Ég þoli ekki að eiga afganga svo ég heklaði þennan dúkkukjól úr lanettafgöngunum sem ég átti frá síðasta verkefni.

ÚtsaumurPosted by Anna Björg 01 Jan, 2010 14:48:24Arna er flink í höndunum og saumaði þessa mynd handa afa sínum, hún valdi litina algjörlega sjálf og breytti og bætti það sem hún var ekki ánægð með.
Prjón og heklPosted by Anna Björg 01 Jan, 2010 14:42:33Æskuvinur Pálmars verður pabbi á næstu dögum og því kjörið tækifæri fyrir mig til að prjóna ungbarnafatnað. Þetta er prjónað úr lanett-garni á prjóna númer tvö og hálft.